• Public Gallery  • Help  
• Join Now!  • Log In  • Feature Tour
 Sunratz | Home > About My Breeding > 
Um mig
Ég kynntist þessari tegund fyrst í gegnum dóttur mína og ákvað eftir þó nokkra umhugsun að bjóða yndislegri Rat Terrier stelpu velkomna í mína fjölskyldu eftir það var ekki snúið, Sif Salka bræddi mig í alla staði og var ég ekki lengi að bæta við annari gullfallegri Rat Terrier stelpu henni Emblu Líf.

Með tímanum jókst áhuginn minn á þessari tegund en meira og fór ég að huga að ræktun á þessari frábæru tegund, ég flutti inn rakka sem kæmi til með að vega vel á móti kostum og göllum Sif Sölku og ekki leið langur tími þangað til að það komu hvolpar undan mínum allra fyrsta Rat Terrier hundi og ákvað ég að halda eftir henni Ísabellu úr því goti.

Mitt markmið er að rækta undan heilbrigðum, skapgóðum og vel gerðum Rat Terrier hundum, ég er kröfuhörð á þá hunda sem ég nota í ræktun og einnungis þeir bestu verða fyrir valinu sem ræktunardýr.

Allir ræktunarhundar í minni eigu eru alþjóðlega skráðir í gegnum AKC Foundastion Stock Service. Allir hvolpar frá mér eru einnig skráðir í gegnum AKC FSS.

Ég heilsufarsskoða einnig mína ræktunarhunda, gegn PLL augnsjúkdómi, hnékskelja, hjartaskoða, LCP skoða ásamt mjaðma og olnbogamyndun.

Margir verðugir hundar hafa bæst við í mína ræktun en hægt er að skoða þá betur á heimasíðunni, nú rækta ég undir ræktunarnafninu SunRatz.
Date(s): January 16, 2012. Album by Mjolnis. 1 - 2 of 2 Total. 46 Visits.
Start SlideshowTo order prints and photo-products: 1. Select photos. 2. Click Order. 3. Select products.Send Email of Selected Photos 
Enlarge photo 1
1
Ég ásamt Lucy minni

Enlarge photo 2
2
Dóttir mín með Ými sem hvolp 2009

 Select All.  
 
Album Properties. Email Album. Send Invitation. Add to Website. Share URL